Við verðum gefin saman þann 12. ágúst kl 1800 af séra Guðbjörgu Arnardóttur í Oddakirkju á Rangárvöllum og það eru allir velkomnir í kirkjuna!
Níels frændi Ingu Þóreyjar og Elín frænka hennar munu syngja í kirkjunni og Þorgeir Gísli bróðir Ragnars mun spila á gítar.

oddakirkja                                 oddakirkja

Oddi hefur verið kirkjustaður frá upphafi kristni. Fyrsta kirkjan var byggð fyrir ábendingu loftsýnar en menn sáust svífa um loftið og varpa niður spjóti og kirkjan var byggð, þar sem það stakkst í jörðu. Í katólskum sið var hún helguð heilögum Nikulási.

Núverandi kirkja var byggð 1924. Hún tekur 100 manns í sæti. Jón og Gréta Björnsson endurbættu og máluðu kirkjuna 1953 og síðan var hún endurvígð. Silfurkaleikur í kirkjunni er talinn vera frá því um 1300.

http://www.snerpa.is/net/thjod/saemi.htm hér er hægt að lesa þjóðsöguna af Sæmundi Fróða, en hann var einn af frægustu prestum Oddakirkju.