 |
Við kynntumst í Gunnarsholti sumarið 2001 þar sem við vorum að vinna saman hjá Landgræðslunni og þess vegna langar okkur til að fagna brúðkaupinu okkar þar.
Við vorum ekki lengi að taka eftir hvoru öðru eftir að Inga Þórey kom austur en ástarsambandið hófst í Þórsmörk þar sem við vorum í útilegu fyrstu helgina í júlí, voðalega íslenskt eitthvað!
Fyrstu tvo vetur sambandsins bjó Inga Þórey í Reykjavík en Ragnar fyrir austan en við eyddum öllum helgum og fríum saman og símreikningar foreldra okkar fóru snarhækkandi. Við ákváðum fljótlega að við vildum eyða ævinni saman, en við fengum finnska samstarfskonu okkar í Gudvangen, Noregi, til þess að útbúa fyrir okkur hringa sumarið 2003. Við höfum búið saman síðan en byrjuðum ‘að búa’ í ágúst 2004.
|
 |