 |
Eftir athöfnina bjóðum við til grillveislu í Gunnarsholti.
Það verður fordrykkur á meðan grillmeistararnir (www.grillmeistarinn.is) grilla ofan í okkur og hefst hann líklega um kl. 1900
Svo verður sest inn í veislutjald þar sem við munum gæða okkur á grillmatnum, eldgrilluðum lambalærum og meðlæti og svo brúðkaupstertu í eftirmat. Veislustjóri verður Eline (Ragnheður, Naddý) frænka Ingu Þóreyjar og ef þið viljið vera með uppákomu í veislunni hafið þá endilega samband við hana veislustjori@ragginga.com og hægt er að hringja í hana í síma 694 2024 eftir 30. júlí
Eftir matinn munum við svo slá upp sveitaballi í tjaldinu og vonandi verðið þið sem flest sem sjáið ykkur fært að vera með okkur og dansa fram á nótt!
|
 |